Ríkisstjórnin er búin að segja af sér í verki

Ríkisstjórn sem brýtur vísvitandi á Stjórnarskránni er fallin, henni ber tafarlaust að víkja þvi hún getur ekki haft umboð til að starfa fyrir þjóðina þvi umboðið felst í þvi að starfa skv Stjórnarskránni.

Því er það mitt mat sem lögdindils að Ríkisstjórnin hafi nú með þvi að samþykkja tilmæli Seðlabanka og Fmr sagt af sér


mbl.is Fordæma viðbrögð SÍ og FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ný fallinn dómur Hæstaréttar varðandi myntkörfulánin

Þessi tengin lánanna dæmd ólögleg ! mikill sigur fyrir lántakendur, annað sem er einnig athyglisvert er annar dómur sem féll sama dag og tekur af allann vafa um það að þessum lánum verður óheimilt að breyta í lán með íslenskri verðtryggingu, eftir standa því lán þar sem miða skal við upphaflega gefinn höfðstól og upprunalega vexti, frá þeim höfðustól skulu dragast allar þær greiðslur sem inntar hafa verið af hendi, ofgreiðslur skulu bera vexti og dráttarvexti og dragast frá upprunalegum höfuðstól, hafi ökutæki verið greitt upp verða lánafyrirtækin að greiða til baka ofgreiðslur ásamt vöxtum og dráttarvöxtum frá þeim degi sem þeir tóku við ofgreiðslunni.

Ofan á þetta er skýrt í dómi hæstaréttar að svokallaðir kaupleigusamningar eru í raun ekki leigusamningar heldur lánasamningar vegna uppbyggingar þeirra og eðlis og hafa þvi vörslusviptingarfyrirtækjunum verið óheimilt að taka til sín ökutæki án fallinns dóms - gerir þetta þvi lánafyrirtækin og jafnvel vörslusviptingar fyrirtækin skaðabótaskild þar sem þau hafa ákveðið að starfa gegn lögum.


Margfaldaðu atkvæði þitt settu x við Æ

Atkvæði greitt með Besta Flokknum hefur 10x meira gildi en atkvæði greitt með gömlu stöðnuðu flokkunum, þvi er engin spurning hvað fólk á að kjósa vilji það sjá atkvæði sitt verða að einhverju !
mbl.is Vill hvítflibbafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þeir kæfðu börnin okkar

Baráttan fyrir réttlæti og eðlilegu samfélagi virðist ekki vera að skila miklu, þeir aðilar sem telja sig tilheyra stjórnvöldum tala í frösum um að verð sé að vinna á fullu en sú vinna sé bara undir yfirborðinu.

Á meðan eiga hundruðir ef ekki þúsundir heimila erfitt eða jafnvel ómögulegt með að ná endum saman, börnin þurfa kannski að éta hafragrjón í vatni í hvert mál þar sem ekki er til annað á heimilinu.

Ég spyr þvi senda Jóhanna og Steingrímur ekki bara af stað sveitir til þess að kæfa börnin okkar, þau virðast ælta sér að drepa þau með aðgerðarleysi sínu og marklausum aðgerðum.


Þöggun í fjölmiðlum

Sendi Boga Ágústssyni eftirfarandi bréf í dag...

 

 nú á dögunum var rætt við Gunnar Tómasson Hagfræðing í Kastljósi og er að mínu mati um eitthvert athyglisverðasta viðtal síðan í byrjun kreppunnar að ræða þar sem hann vitnar m.a. í lög sem segja til um að svokölluð myntkörfulán séu ólögleg, mér hefur þótt einkennilegt hvað það hefur verið rætt lítið um þetta viðtal og hve lítið hefur verið unnið í fjölmiðlum út frá þvi ( eins og verið sé að þagga niður þessa umræðu ) þar sem hérna er um að ræða gríðarlegt hagsmunamál fyrir almenning. Í gær fór vinur minn sem er með myntkörfulán  hjá SP fjármögnun og ræddi þetta við fjármálastjóra fyrirtækisins, en fékk þau svör að SP myndi ekki á neinn hátt bregaðst við þessum fréttum og halda áfram að rukka inn óbreytt alveg þar til einhver færi með þetta fyrir dómstóla og fengi niðurstöðu þaðan í málið...

Mér finnst alvarlegt ef þessu máli er ekki fylgt eftir af fjölmiðlum af fullum krafti þar sem nokkuð ljóst er að það er verið að brjóta lög á almenningi í hagnaðarskyni ( þjófnaður ) og fela sig bak við þekkingar kjarkleysi almennings i þeim efnum.

Endilega farið nánar í þetta okkar fólksins í landinu vegna

kv
Steinar Sörensson


Það er til lausn - sem gerir okkur kleyft að standa við Icesave

 

kunningi minn kom að þessu í spjalli sem við áttum í dag, og benti áað afhverju ætti að láta almenning blæða fyrir óreglu nokkura glælpamanna er ekki nær að þeir fái að blæða fyrir sína glæpi

Hún er mjög einföld og myndi eflaust skapa hundruðir starfa, og felst í þvi að þjóðnýta allar eigur þeirra sem komu okkur í þessi vandræði.

 Þar með talið allar Bónus Verslanirnar, Hagkaups verslanirnar, 10/11 verslanirnar,  Iceland Express, Vodafone, Símann, Tal og tugi annara stórfyrirtækja á landinu sem eru og hafa verið í eigu þessara glæpamanna. 

 


Vonarglæta í myrkri auðvaldsins

Ég tek ofan fyrir þér gröfumeistari !!!!!!!!!!
mbl.is Eyðilagði íbúðarhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek ofan fyrir þér gröfumaður

Þetta er eina vitið, bankarnir sýna fólki í erfiðleikum enga samúð, þvi hef ég fengið að kynnast sjálfur, ég legg til að allir þeir sem eru neyddir út af heimilium sínum af lánastofnum grípi til einhverra viðlíka aðgerða.

Það myndi kalla á að mannlegi þátturinn yrði meira metinn þvi þarna tapa bankarnir gríðarlegu fé ef fólk fer að gera þetta í massavís.

og ef fólk er hvort eð er að verða gjaldþrota þá skiptir engu máli hvort það bæti aðeins ofan á það.

Ég sendi auðvaldinu fingurinn - þetta er bara byrjunin sem þið eruð að sjá hér, það var ekki lengi verið að handtaka þennan því hann var að skemma fyrir bankanaumn, en þeir sem stjórnuðu bönkunum og eyðileggja fyrir fólkinu í landinu ganga enn lausir - viðbjóður !


mbl.is Bankinn fékk ekki lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausn á fjárhagserfiðleikum Íslendinga í sjónmáli

Ýmsar hugmyndir hafa komið upp um hvernig á að leysa það fjárhagslega öngþveiti sem hér hefur myndast, margir hafa þegar flúið land og margir eru á leiðinni að flýja land.

Þegar ég lagðist undir feld í dag í einar 20 mínútur kom til mín hugmynd sem ég tel að ætti að framkvæma. Því í henni er falin uppbygging heimilanna í landinu og uppbygging atvinnu í landinu.

Fórnirnar sem þessi hugmynd hefur í för mér sér munu fyrst of fremst verða til þess að byggja þarf bankakerfið upp á nýtt, en með þá þekkingu sem við höfum hér á landi yrði það ekki mikið mál.

Lausnin felst í þessu, afskrifa allar skuldir heimila landsins, húnæðisskuldir, bifreiðaskuldir, yfirdrætti og annað sem heimilin skulda bönkum og fjármálastofnunum.

Við þurfum að fórna bönkunum, jafnvel íbúðalánasjóði, og einhverjum fleiri fjármálafyrirtækjum, en í staðinn fegjum við heimili sem væru án skulda og þvi gætu menn farið í það að nota fjármagn sitt sem það ynni fyrir og ekki færi í neyslu til að byggja upp atvinnustarfsemi fyrir aðra,

Þekking bankanna yrði notuð til að halda úti bankareikningum og fjármagnsflutningum við útgreiðslu launa á ábyrgana og öruggan hátt.

Lífeyrissjóðina væri síðan hægt að nota til þess að byggja upp nýjan íbúðalána og lífeyrissjóð sem fyrst og fremst fjárfesti í húsnæði. Og væri til lengri tíma ætlaður til þess að fjármagna eftirlauna lífeyri landsmanna einnig.

Með þessu móti náum við að byggja upp nýjan grunn undir nýtt samfélag og brjótum niður gamla grunninn í stað þess að ætla að reisa eitthvað á rústunum sem kanna að falla í höfuðið á okkur seinna.

Burt með þann hugsunarhátt sem setti okkur á kaldan klaka, hlýjum okkur við nýjar hugmyndir.

Þetta eru mínar persónulegu skoðanir, en ég tek það einnig fram að ég er í 10 sæti á lista Borgarahreyfingarinnar í Suðurkjördæmi.

 

 

 


Niðurstaða mín úr kosningakompás á mbl.is áhugavert

Kosningakompás mbl.is - niðurstaða - Þessi niðurstaða er alveg í fullu samræmi við það sem ég ætla að kjósa. Skemmtileg leið til að átta sig á hlutunum.

Hér að neðan er niðurstaða fyrir mig skv þeim svörum sem ég veitti og svaraði eftir minni bestu sannfæringu.

Samsvörun svara þinna við svör flokkanna er sem hér segir:

Flokkur Samsvörun
Borgarahreyfingin (O) 84%
Samfylkingin (S) 70%
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (V) 64%
Framsóknarflokkur (B) 64%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 63%
Lýðræðishreyfingin (P) 62%
Sjálfstæðisflokkur (D) 36%

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband