Margfaldaðu atkvæði þitt settu x við Æ
28.5.2010 | 19:52
Atkvæði greitt með Besta Flokknum hefur 10x meira gildi en atkvæði greitt með gömlu stöðnuðu flokkunum, þvi er engin spurning hvað fólk á að kjósa vilji það sjá atkvæði sitt verða að einhverju !
|
Vill hvítflibbafangelsi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |






Athugasemdir
Er ekki sammála þér. Þetta er eiginlega orðið hálf þreytt. Mér finnst málflutningur þeirra í Besta flokknum ekki trúverðugur. Fannst þetta flott fyrst en núna grunar mig að Jón Gnarr og einhverjir aðrir séu að nota þetta framboð sem einhvers konar þráð í mynd eða sögu. Held þeir séu ekki að hugsa um Reykvíkinga - nema sjálfa sig náttúrulega. Sit bara heima.
Margrét (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 19:58
trúverðugur og pólitík geta ekki verið saman í setningu Margrét...............engin flokkur er trúverðugur.
CrazyGuy (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 20:23
Ástæðan er eflaust sú að þér finnst þeir orðnir dálítð alvarlegri núna, þeir gera það til að svara kalli þeirra sem á þá vilja ráðast, ef þú lest aðgerðaráætlun þeirra á síðunni bestiflokkurinn.is, ættirðu að sjá hvort þú ættir að sitja heima eða mæta og setja x ið æ - í mínum huga er þetta engin spurning mér finnst hugmyndir þeirra góðar, frumlegar og il þess fallnar að hjálpa þjóðinni út úr núverandi kreppu bæði móralskt og fjárhagslega
Steinar Immanúel Sörensson, 28.5.2010 kl. 20:29
Já sittu bara heima Margrét. Húmorslaus og fúl.
Þín heimaseta styrkir bara spillinguna.
Efast reyndar um þig...held að þú sért með áróður fyrir hönd aðra flokka.
Már (IP-tala skráð) 28.5.2010 kl. 20:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.